26.03.2012 00:40

Íslandsmeistaramótið 2012




Laugardaginn 24.3 fór fram  Íslandsmeistaramótið í ólympískum lyftingum í Borgarnesi.  Mikil gróska er í ástundun ólympískra lyftinga á Íslandi um þessar mundir og var mótið hið fjölmennasta í áraraðir. Margir ungir og efnilegir lyftingamenn þreyttu frumraun sína á mótinu og gefur frammistaða þeirra góð fyrirheit um framtíð Ólympískra lyftinga á Íslandi. Sérstaklega var ánægjulegt að sjá nýja og vel þjálfaða kynslóð lyftingakvenna, sem flestar hafa kynnst Ólympískum lyftingum í gegnum ástundun sína á Crossfit.

Besta árangri mótsins náðu þau Gísli Kristjánsson, sem hlaut 345 Sinclair stig, og Þuríður Erla Helgadóttir sem hlaut 185,0 Sinclair stig.
Fjölmörg Íslandsmet voru sett á mótinu, og fara þau hér á eftir:

Hrannar Guðmundsson, í 77 kg þyngdarflokkki, setti Íslandsmet í snörun (108kg), jafnhendingu (140kg) og samanlögðu (248kg).

Þuríður Erla Helgadóttir, í 58 kg þyngdarflokki, setti Íslandsmet í snörun (62 kg), jafnhendingu (77 kg) og samanlögðu (139 kg).

Sigurlaug Rúna Guðmundsdóttir, í 63kg þyngdarflokki, setti Íslandsmet í snörun (54kg), jafnhendingu (71kg), og samanlögðu (125kg).

Katrín Tanja Davíðsdóttir, 18 ára, lyfti 70 kg í snörun, og bætti þar með Íslandsmet Anníe Mist Þórisdóttur um 2 kg. Hún setti jafnframt met í flokki 20 ára og yngri í snörun (70 kg), jafnhendingu (85kg) og samanlögðu (155 kg). Hún keppti í 69kg þyngdarflokki.

Lilja Lind Helgadóttir, 15 ára, setti stúlknamet í snörun (50kg), jafnhendingu (70 kg) og samanlögðu (120 kg). Hún keppti í 69 kg þyngdarflokki.

Guðmundur Högni Hilmarsson, 15 ára, setti drengjamet í í snörun (90kg), jafnhendingu (112 kg) og samanlögðu (202 kg). Hann keppti í 85kg þyngdarflokki.

Úrslit í samanlögðum árangri í snörun og jafnhendingu voru sem hér segir:

77 kg flokkur karla
Hrannar Guðmundsson     248kg
Einar Óli Þorvarðarson  168kg
Skúli Pálmarsson        60kg

85 kg flokkur karla
Guðmundur Högni Hilmarsson      202kg
Bobby-Blagovest Dontchev        169kg

94 kg flokkur karla
Árni Björn Kristjánsson 192kg
Sindri Garðarsson       175kg

105 kg flokkur karla?
Davíð Arnar Sverrisson  205kg
Ingi Gunnar Ólafsson    120kg

Yfir 105kg flokkur karla
Gísli Kristjánsson              325kg
Lárus Páll Pálsson              167kg

Karlar: Sinclair stig
345 Gísli Kristjánsson
304  Hrannar Guðmundsson
251,8 Guðmundur Hilmarsson

Konur: Sinclair stig
Þuríður Erla Helgadóttir 185,0 stig
Katrín Tanja Davíðsdóttir 183,9 stig
Sigurlaug Rúna Guðmundsdóttir 158,1 stig

53 kg flokkur kvenna
Hafdís Björg Kristjánsdóttir    56kg

58 kg flokkur kvenna
Þuríður Erla Helgadóttir        139kg
Anna Hulda Ólafsdóttir          114kg

63 kg flokkur kvenna
Sigurlaug Rúna Guðmundsdóttir   125kg
Erla Guðmundsdóttir             110kg

69 kg flokkur kvenna
Katrín Tanja Davíðsdóttir       155kg
Ingunn Lúðvíksdóttir            130kg
Lilja Lind Helgadóttir          120kg

Yfir 75 kg flokkur kvenna
Sylvía Ósk Rodriguez    75kg

85kg Drengjaflokkur, (undir 17 ára)
Guðmundur Högni Hilmarsson      202kg

69kg Stúlknaflokkur, (undir 17 ára)
Lilja Lind Helgadóttir          120kg

69kg Unglingaflokkur kvenna, undir 20 ára
Katrín Tanja Davíðsdóttir       155kg


13.03.2012 20:04

Íslandsmótið


Íslandsmeistaramótið í Ólympískum Lyftingum verður haldið þann 24 mars í Íþróttahúsinu Borgarnesi. Mætir Annie Mist? Mun Gísli Kristjánsson setja sitt annað Íslandsmet á þessu ári? Daði Reynir setti Íslandsmet í Janúar, þorir hann að mæta Hrannari í 77 kg. flokknum? Getur 15 ára unglingur lyft 100 kílóum yfir höfuð?

Fylgist með vegferðinni og komið í Nesið til að hvetja keppendur. Skráningar til keppni í gegnum LSI@LSI.is 

Stefnt er að því að sýna beint frá mótinu í gegnum www.sporttv.is. 

10.02.2012 19:28

11 Íslandsmet

Lárus Páll Pálsson
  • Glæsilegu móti í ólympískum lyftingum er lokið á Reykjavíkurleikunum. Hvorki fleiri né færri en 11 Íslandsmet litu dagsins ljós á þessu firnasterka móti.
    Keppnin fór fram í húsakynnum Crossfit Reykjavík og Lyftingafélags Reykjavíkur í Skeifunni 8.
    Keppt var samkvæmt Sinclair staðli, sem þýðir að líkamsþyngd og heildarþyngd sem er lyft eru tekin með í reikninginn og allir keppendur metnir samkvæmt því.

    Úrslit mótsins urðu þau að í kvennaflokki sigraði Christina Trier Ejstrup frá Danmörku, í öðru sæti varð Madeleine Alhner frá Svíþjóð og í þriðja sæti Anníe Mist Þórisdóttir, Lyftingafélagi Reykjavíkur. Í karlaflokki sigraði Gísli Kristjánsson, Lyftingafélagi Reykjavíkur, í öðru sæti varð Daniel Skoglund frá Svíþjóð og í þriðja sæti Frederik Ægidus frá Danmörku.

    Íslandsmetin ellefu sem sett voru á mótinu eru eftirfarandi:

    Bjarki Guðmundsson úr Ármanni, setti 2 Íslandsmet í unglingaflokki 77 kg og snaraði 85 kg sem er nýtt Íslandsmet og í samanlögðu 187 kg sem er líka nýtt Íslandsmet.

    Daði Reynir Kristleifsson úr Lyftingafélagi Reykjavíkur setti íslandsmet í 77 kg flokki karla þegar hann jafnhattaði 124 kg.

    Gísli Kristjánsson úr Lyftingafélagi Reykjavíkur, setti Íslandsmet í +105kg flokki karla, þegar hann snaraði 156kg.

    Anna Hulda Ólafsdóttir úr Lyftingafélagi Reykjavíkur, setti 2 Íslandsmet í 58 kg flokki kvenna þegar hún snaraði 55kg og 120 kg samanlagt á sínu fyrsta móti sem verður að teljast stórkostlegur árangur.

    Sigurlaug Rúna Guðmundsdóttir úr Lyftingafélagi Reykjavíkur setti 3 Íslandsmet í 63 kg flokki kvenna, þegar hún snaraði 50kg, jafnhattaði 70kg og náði því 120kg samanlagt. Allt nýtt Íslandsmet og eins og hjá Önnu Huldu er Sigurlaug að keppa í fyrsta skipti og því um að ræða stórkostlegan árangur.

    Anníe Mist Þórisdóttir úr Lyftingafélagi Reykjavíkur, setti 2 Íslandsmet í 69 kg flokki kvenna, þegar hún jafnhattaði 92 kg og samanlagt 157 kg.

    Ólympískar lyftingar voru í fyrsta sinn í ár á meðal keppnisgreina á Reykjavíkurleikunum og byrjuðu heldur betur vel með sterku og skemmtilegu móti.


09.02.2012 20:32

Þjálfaranámskeið

Þjálfara námskeið í Ólympískum Lyftingum

Núna um helgina er þjálfaranámskeið í Ólympískum lyftingum.

Miðar á námskeiðið kosta 45.000 kr. en Lyftingasambandið getur boðið miðana á 35.000 kr. Námskeiðið er styrktarhæft hjá flestum starfsmannafélögum.

Þjálfara og fyrirlesarar eru;

Pat Cullen-Carroll, CSCS sem er gamalreyndur íþróttakennari og margreyndur styrktar- og lyftingaþjálfari og fyrirlesari. Hann hefur meðal annars séð um Sports Performance Coach námskeiðin hjá lyftingasambandi Bandaríkjanna ásamt að vera í þjálfara-/fræðslunefnd sömu samtaka. Pat hefur þjálfað lyftingar á öllum stigum, frá byrjendum upp í keppendur á alþjóðamótum.

og

Bob Takano, CSCS æfði lyftingar af miklum krafti á árunum 1967 til 1988 og hóf þjálfun samhliða æfingunum. Frá 1988 hefur hans líf snúist um þjálfun lyftingafólks og að breiða út boðskap lyftinga. Árið 2005 hlaut hann þá viðurkenningu að vera heiðraður inní "the USA Weightlifting Hall of Fame."

Farið verður yfir sambærilegt efni og er kennt til 1. stigs þjálfunarréttinda í Bandaríkjunum, þannig að þetta er flottur grunnur fyrir alla sem vilja ná betri árangri með sjálfan sig og/eða vilja byrja að þjálfa lyftingar.

Endilega sendið línu á mig sem fyrst ef þið hafið áhuga.

Bestu kveðjur
Lárus Páll Pálsson
Formaður Lyftingasambands Íslands

19.01.2012 23:05

Ólympískar lyftingar á RIG

Fréttatilkynning - Ólympískar lyftingar á RIG
Lyftingasamband Íslands, Ármann og Lyftingafélag Reykjavíkur bjóða þér að koma og fylgjast með alþjóðlegu lyftingamóti sem er hluti af Reykjavík International Games 2012. Leikarnir fara fram þann 19. til 22. janúar, 2012.

Lyftingamótið verður haldið sunnudaginn 22. Janúar og hefst kl. 13.00 í CrossFit Reykjavík, Skeifunni 8 þar sem Lyftingafélag Reykjavíkur er til húsa. Aðgangur ókeypis.

Meðal keppenda eru Gísli Kristjánsson (mynd), Íslandsmeistari karla 2011, Annie Mist Þórisdóttir Íslandsmeistari kvenna 2011, Svíarnir Daniel Skoglund og Madeleine Alhner og Danirnir Christina Trier og Frederik Ægidius.

Uppruni Ólympískra lyftinga
"Ólympískar lyftingar voru notaðar sem grunnþjálfun og náttúruleg leið til að mæla styrk og afl. Ólympískar lyftingar voru stundaðar bæði í forn egypskum og grískum samfélögum. Alþjóðlegt mikilvægi Ólympískar lyftinga fór vaxandi einkum á 19. öld. Ólympískar Lyftingar voru á meðal þeirra fáu íþrótta sem voru á dagskrá fyrstu nútíma Ólympíuleika í Aþenu 1896 ásamt sundi, fimleikum, skylmingum, glímu, skotfimi og hjólreiðum. Ólympískar lyftingar eru því ein af fáum íþróttum í heiminum sem hefur verið alþjóðleg keppnisgrein í meira en þrjár aldir, frá 1891 í gegnum 19. öldina og til vora daga."tilv.. www.iwf.net

Staðsetning
Lyftingarfélag Reykjavíkur Skeifunni 8
Reglur
Reglur í samræmi við IWF reglurnar
Lyfjaeftirlit
Lyfjaeftirlit fer fram í samræmi við IWF reglugerð og Lyfjaeftirlit ÍSÍÍSÍ?
Verðlaun
Gull, silfur og brons verða veitt fyrir fyrsta, annað og þriðja sætið í samanlagðri stigakeppni
Sjónvarpsútsendingar
Þú getur fylgst með á netinu: www.ruv.is og www.sporttv.is.
Nánari upplýsingar
Lárus Páll Pálsson
Formaður Lyftingasambands Íslands
Sími; 844 4966
Tölvupóstur; formadur@lsi.is

13.01.2012 17:49

ÍSÍ í þjálfaramenntun

 

Vorannarfjarnám ÍSÍ í þjálfaramenntun!

Vorannarfjarnám 1. stigs þjálfaramenntunar ÍSÍ mun hefjast mánudaginn 6. febrúar nk. og tekur það átta vikur.  Um er að ræða samtals 60 kennslustunda nám eða sem samsvarar öllu 1. stiginu,1a, 1b og 1c.  Námið er almennur hluti þjálfaramenntunar ÍSÍ og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar.  Skráning er á namskeid@isi.is eða í síma 514-4000 og þarf henni að vera lokið fyrir fimmtudaginn 2. febrúar. Með skráningu þarf að fylgja fullt nafn, kennitala, heimilisfang, netfang og símanúmer.  Rétt til þátttöku hafa allir sem lokið hafa grunnskólaprófi.  

Þetta nám er metið sem ÍÞF 1024 í framhaldsskólum.

Allar nánari uppl. um fjarnámið og aðra þjálfaramenntun ÍSÍ gefur sviðsstjóri Þróunar- og fræðslusviðs í síma 460-1467 eða á vidar@isi.is   

Með bestu kveðju,

Viðar Sigurjónsson
Sviðsstjóri Þróunar- og fræðslusviðs ÍSÍ.

13.01.2012 17:41

Afreksþjálfun - Ráðstefna 19.janúar 2012

Afreksþjálfun - Ráðstefna 19.janúar 2012
Í tilefni af fimmtu Reykjavíkurleikunum og 100 ára afmæli ÍSÍ munu Íþróttabandalag Reykjavíkur
og Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands standa fyrir ráðstefnu í samstarfi við Háskólann í Reykjavík.
Fyrirlestrarnir munu fara fram í Háskólanum í Reykjavík fimmtudaginn 19.janúar. Ráðstefnan hefst
kl.18:00 og lýkur kl.21:00. Þrír mjög áhugaverðir erlendir fyrirlesarar munu flytja erindi um
afreksþjálfun en ráðstefnustjórar verða þau Þórdís Gísladóttir, sviðsstjóri íþróttafræðasviðs HR, og
Viðar Sigurjónsson sviðsstjóri þróunar- og fræðslusviðs ÍSÍ. Fyrirlestrarnir fara allir fram á ensku.
Dagskrá
Agne Bergvall - Mikilvægi styrktarþjálfunar
Agne Bergvall er frjálsíþróttaþjálfari og hefur meðal annars þjálfað Carolinu Kluft sem er
fyrrverandi Ólympíugullverðlaunahafi í sjöþraut kvenna. Í dag þjálfar hann m.a. Helgu Margréti
Þorsteinsdóttur. Agne hefur einnig starfað sem styrktarþjálfari danska handboltalandsliðsins og
knattspyrnuliðsins Malmö FF. Í erindi sínu fjallar Agne meðal annars um hvers mikilvæg
styrktarþjálfun er fyrir allar íþróttagreinar.
Didier Seyfried - Hvernig nýtir afreksmaðurinn krafta sína best?
Didier er sérfræðingur hjá "National Sport and Physical Education Center" í Frakklandi. Hann
stundar þar rannsóknir í líkams- og hreyfifræðum en í vinnu sinni er hann að leita leiða til að
þolíþróttamenn nýti krafta sína á sem hagkvæmastan hátt. Hann skoðar tíðni, hreyfimynstur og
fleira áhugavert en hann nýtir tölvutæknina mikið í sinni vinnu. Hann hefur unnið með
sérsamböndum sunds, hjólreiða, þríþrautar, skíðaíþrótta og fimleika í Frakklandi. Didier hefur verið
landsliðsþjálfari í sundi og nútima fjölþraut þar sem hann náði heimsklassa árangri áður en hann
snéri sér að rannsóknum árið 1998.
Hans Söndergaard - Keníu hlauparar og áhrif styrktarþjálfunar á þolþjálfun
Hans er lífeðlisfræðingur hjá "Copenhagen Muslce Research Centre". Hann hefur unnið lengi að því
hvernig best sé að haga úthaldsþjálfun en hann er hvað þekktastur fyrir rannsókn sem hann gerði til
að greina muninn á afrískum og evrópskum langhlaupurum; Hvað skýrir yfirburði Kenýa í
langhlaupum? Erfðir eða umhverfi. Hann hefur unnið með afreksfólki í hjólreiðum, skíðum,
langhlaupum og öðrum þolgreinum. Hann hefur einnig unnið ötullega að því hvernig líkamsþjálfun
hjálpar sykursjúkum.
Skráning
Ráðstefnugjald er kr. 1.500,- og er innifalið í gjaldinu léttur kvöldverður sem borinn verður fram um
kl.19. Skráning fer fram á netfanginu linda@isi.is og greiðist við komu. Síðasti skráningardagur er
miðvikudagurinn 17.janúar. Hámarksfjöldi á ráðstefnuna er 120 manns.
Kveðja
f.h. ÍBR og ÍSÍ
Kjartan Freyr Ásmundsson Viðar Sigurjónsson
Verkefnastjóri Reykjavíkurleikanna Sviðsstjóri þróunar- og fræðslusviðs ÍSÍ
PDF Created with deskPDF PDF Writer - Trial :: http://www.docudesk.com

30.12.2011 12:42

Lyftingamaður og Lyftingakona Íslands 2011

Fréttatilkynning frá Lyftingasambandi Íslands

 

Lyftingasamband Íslands hefur valið Gísla Kristjánsson og Annie Mist Þórisdóttur Lyftingamann og -konu Íslands.

 

Lyftingamaður Ársins er Gísli Kristjánsson, Íslandsmeistari í +105 kg. flokki og varð hann í 2. sæti á Norðurlandamótinu í Pori í Finnlandi í -105 kg. flokki

 

Gísli lyfti eftirfarandi á Norðurlandamótinu

150 kg. í Snörun

165 kg. í Jafnhöttun

215 kg. í Samanlögðu

Samtals 343,827 Sinclair stig

 

Lyftingakona Ársins er Annie Mist Þórisdóttir, Íslandsmeistari í 69 kg. flokki. Hún setti 3 Íslandsmet á Íslandsmeistaramótinu í lyftingum í Mars. 

 

Annie lyfti eftirfarndi á Íslandsmeistarmótinu

68 kg. í Snörun

87 kg. í Jafnhöttun

155 kg. í Samanlögðu

Samtals 182,616 Sinclair stig

 

Annie Mist varð einnig Heimsmeistari í Crossfit kvenna á Heimsleikunum í Crossfit í Los Angeles á árinu.

 

Lyftingasambandið óskar þessu afreksíþróttafólki ásamt öðru afreksfólki til hamingju með það góða íþróttaár sem er að líða.

 

Stjórn Lyftingasambands Íslands

25.11.2011 20:46

Lyftingaþing

Núna um helgina verður Lyftingaþing í E- Sal ÍSÍ niður á Engjavegi 6 og hefst það kl. 17.00. Laugardaginn 26.nóvember dagskráin verður til 19.00. Eftir það verður farið á Kexverksmiðjuna þar sem menn geta haldið áfram að spjalla um Lyftingar á eigin vegum.

Við ætlum að afhenda dómaraskírteinin á Lyftingaþinginu, og ég vonast til að sem flestir geti mætt.

Bestu kveðjur

Lárus Páll Pálsson
Formaður Lyftingasambands Íslands

02.11.2011 13:09

Liðakeppni

Liðakeppni í Ólympískum Lyftingum

Play true.pngHörpunni

Laugardaginn 5. Nóvember kl. 11.00

 

Nýjung á Íslandi  Liðakeppni í Ólympískum Lyftingum. Keppt er samkvæmt Sinclair stigakeppni og eru 3-4 einstaklingar í liði. Bæði Konur og Karlar geta keppt þar sem stigin eru umreiknuð miðað við líkamsþyngd og kyn. Vigtun hefst kl. 09.00 sama dag.

 

 

 

 

Við hvetjum alla til þess að skrá lið til keppni, ekkert þáttökugjald og skráningar óskast sendar á lsi@lsi.is fyrir fimmtudaginn 4. nóvember 2011. Nánari upplýsingar veitir Bjarki í síma 867-0470.

01.11.2011 21:16

Námskeið!

Dómaranámskeið verður haldið dagana 11 og 12 Nóvember. Per Mattingsdal frá Norðurlandasambandinu mun koma og halda námskeiðið í sal ÍSÍ. Námskeiðið hefst kl. 17.00 á föstudeginum og endar með skriflegu prófi á laugardaginn milli 16.00 og 18.00. Námskeiðið er ókeypis en skáningar óskast sendar á lsi@lsi.is merktar "Dómaranámskeið". Við hvetjum alla til þess að mæta og ná sér í þessi réttindi.

01.11.2011 20:36

Þrjú íslandsmet slegin!

Guðmundur Högni Hilmarsson setti 3 ný Íslandsmet í 77 kg. drengjaflokki á Norðulandamóti unglinga sem fram fór í Stavanger laugardaginn 29. október. Hann lyfti 80 kg. í Snörun og 101 kg. í Jafnhöttun og samanlagt 181 kg. Guðmundur er aðeins 15 ára gamall en afmæli hans var í gær. Sigurvegari var Rasmus Liwendhal frá Svíþjóð með 215 kg. samanlagt en hann er 17 ára gamall.

Óskum honum innilega til hamingju með árangurinn!

14.10.2011 16:22

Ótitlað

vinsamlegast takið tillit til þess að síðan er í vinnslu.

Kveðja
Stjórnin

12.10.2011 12:50

Lsi.is tekin í notkun

Nú hefur Lyftingarsamband Íslands tekið þessa vefslóð í notkun - http://www.lsi.is .

Endilega hafið samband við okkur á netfangið lsi@lsi.is

  • 1
Flettingar í dag: 26
Gestir í dag: 15
Flettingar í gær: 16
Gestir í gær: 10
Samtals flettingar: 11131
Samtals gestir: 4342
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 01:57:14